477-1800, 861-4747, fax 477-1501    island@islandia.is
Fundir & veislur
 Hótel Capitano býður upp á veitingasal með borðum fyrir 35 manns og útsýni yfir sjóinn. Veitingasalurinn hentar vel fyrir 25 manna fundi og boðið er upp á aðgang að myndvarpa og þráðlausri internettengingu.
Afþreying & athyglisvert

Afþreying og útivist

Afþreying

•Hestaleiga
•Kajakaleiga
• Sjóstangaveiði
• Gönguferðir með leiðsögn
• Áætlunarferðir með farþegaskipinu Skrúð í Mjóafjörð mánudaga og föstudaga.   http://fjardaferdir.is
 Nánari upplýsingar á Hótel Capitano.

Bæjarhátíðir
• Sjómannadagurinn. Þriggja daga hátíðahöld fyrstu helgina í júní.
• Neistaflug, fjölskylduhátíð um Verslunarmannahelgina. Meðal atriða á hátíðinni er
Barðsneshlaup sem er 27 km víðavangshlaup um fjölbreytt land, móa, mýrar, fjörur og tún.
 Hlaupið hefst við bæinn Barðsnes á Barðsnesi, en þangað eru hlauparar ferjaðir frá Neskaupstað
(sigling innifalin í þátttökugjaldi). Hlaupinu lýkur á torginu neðan við sundlaugina í Neskaupstað,
en frítt er í sund fyrir þátttakendur eftir hlaupið. Nánar upplýsingar http://www.islandia.is/bardsneshlaup

• Eistnaflug, rokkhátíð. Á hátíðinni spila margar vinsælustu metal-, pönk-, hardcore-, indí- og rokkhljómsveitir Íslands.
Hátíðin er haldin í Egilsbúð 8.- 10. júlí 2010

Safnahúsið
Í safnahúsinu eru þrjú söfn:
    * Málverkasafn Tryggva Ólafssonar
    * Náttúrugripasafnið í Neskaupstað
    * Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar
Opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst: 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar.
Utan þess tíma, eftir samkomulagi við safnvörð

Útivistarstaðir
• Fólkvangurinn er fyrsti friðlýsti fólkvangurinn og yfir hann gnæfir hæsta standberg úr sjó á Íslandi.
Frá fólkvanginum eru stuttar gönguleiðir t.d. með sjónum út í Páskahelli.  Þar eru holur eftir 10-12 milljón ár
gömul gildvaxin tré.
Fræðslustígur er með ábendingum um ýmis náttúrufyrirbæri.
• Snjóflóðavarnargarðurinn
Ofan byggðarinnar eru risin mikil mannvirki til varnar ofanflóðum í Neskaupstað.
Búið er að koma fyrir gönguleiðum í kring um mannvirkin og hægt er að ganga uppi á þeim og njóta útsýnisins
yfir Norðfjörð.

• Skíðasvæðið í Oddskarði
Skíðalyfturnar í Oddskarði fara í 840 metra hæð.  Þegar upp er komið blasir við ægifagurt
útsýni yfir nærliggjandi fjallgarða og firði. Svæðið er eitt af skemmtilegustu skíðavæðum á
Íslandi og gengur undir nafninu Austfirsku Alparnir.
Í Oddskarði er líka barnalyfta og ágætur skíðaskáli með veitingaaðstöðu.
sjá nánar: www.fjardabyggd.is

Golf

Golfvöllur Golfklúbbs Norðfjarðar, Grænanesvöllur, er staðsettur inn af botni fjarðarins. Skemmtilegur og vel hirtur völlur í fallegu umhverfi. Ekið að vellinum eftir afleggjara til móts við býlið Miðbæ. Daggjald á vellinum er kr. 2.500. Sími í golfskála: 477-1165. Nánari upplýsingar um starfsemi klúbbsins er að finna á heimasíðu klúbbsins.

Almennt:

Flokkur: Golfvöllur Byggingarár: 1965
Holur: 9
Par: 70

Lengd vallar og erfiðleikastuðlar.

Gulir teigar karla - lengd: 5086 m. Vallarmat: 68,8 Vægi: 123
Rauðir teigar karla - lengd: 4258 m. Vallarmat: 64,2 Vægi: 118
Rauðir teigar kvenna - lengd: 4258 m. Vall

 

Viðar H. Sveinsson í vondum málum.
Vetrargolf nýtur vaxandi vinsælda á Norðfirði. (Mynd:VHS)