Hótel Capitano býður upp á veitingasal með borðum fyrir 35 manns og útsýni yfir sjóinn. Veitingasalurinn hentar vel fyrir 25 manna fundi og boðið er upp á aðgang að myndvarpa og þráðlausri internettengingu.
Það er auðvelt að finna til hvíldar og slökunar í einhverju af hinum 9 rúmgóðu herbergjum á Hótel Capitano. Herbergin eru öll með baði, sjónvarpi og þráðlausri internettengingu. Morgunverður er framreiddur í björtum og rúmgóðum matsal hótelsins.