Hótel Capitano býður upp á veitingasal með borðum fyrir 35 manns og útsýni yfir sjóinn.
Veitingasalurinn hentar ágætlega fyrir 25 manna fundi með aðgangi að skjávarpa og þráðlausri internettengingu.
Setustofa með leðurklæddum sófum og stólum tekur allt að 30 manns í sæti. Barinn er miðsvæðis í húsinu og óvíða er boðið upp fjölbreyttara úrval drykkja.
Við getum einnig tekið að okkur veislur og fundi í Málverkasafni Tryggva Ólafssonar. Salurinn er hlaðin fágætum listaverkum og tekur 80 manns í sæti.