Hótel Capitano er lítið og hlýlegt hótel í nýlega endurgerðu 100 ára gömlu bárujárnshúsi í Neskaupstað og er staðsett alveg við sjávarsíðuna.
Hótelið sem er annað af tveimur 3ja stjörnu hótelum á Austurlandi, er rekið af fyrrverandi skipstjóra á fiskiskipi, en þess má geta að Neskaupstaður er mesti fiskveiðibær á Íslandi. Þegar vel stendur á býður skipstjórinn gestum í strandveiði af bryggjunni.
Veggi hótelsins prýða myndir eftir Tryggva Ólafsson, einn kunnasta samtímalistamann þjóðarinnar. Hann ólst upp á Neskaupstað en bjó og starfaði í Kaupmannahöfn í áratugi.
Við bæjarmörkin rétt við vitann er Fólkvangur, sá fyrsti sem stofnaður var á Íslandi. Þar er fjölskrúðugt fuglalíf og stundum bregður þar fyrir lunda.
Neskaupstaður og nágrenni býður upp á merktar gönguleiðir, sögulegan helli, skíðasvæði með þremur lyftum, golfvöll og útisundlaug með heitum pottum, sauna og heilsurækt.
Hótelið er opið allt árið.